" />

Nýjast

KEKB 2025

KEKB 2025

Eftir smá pásu, vegna anna.. Höfum við ákveðið að koma aftur til leiks til að heiðra þá miklu baráttu sem formæður okkar hafa staðið fyrir og haldið uppi síðastliðin ár og áratugi !!- 50 ár eru liðin frá Kvennafrídeginum - Varan okkar í ár, er slæða. Þarf vart að útskýra hvaðan sú hugmynd kom.Við hittum Höllu okkar Tómasdóttur fyrr á árinu, og minnti hún okkur á þennan stóra dag sem framundan væri = 24. októberog í ár væri tímamótahátíð þar sem 50 ár væru liðin frá þessum áhrifamikla degi 1975. Við fylltumst eldmóði og vildum gera eitthvað til heiðurs öllum þeim...

Read more →


2022 - LJÓNSHJARTA - 8,5 milljónir !!!

2022 - LJÓNSHJARTA - 8,5 milljónir !!!

8,5 milljónir !!!!!  Við erum orðalausar - Takk til ykkar allra sem stukkuð á vagninn.. Áfram Gakk !! Verum næs, stöndum saman og höldum með hvort öðru, í stað þess að rífa náungann niður.Saman stöndum við sterkari en í keppni við hvort annað. Konur Eru Konum Bestar er lítil breyting á setningu en stór breyting á hugarfari. Í fyrsta skiptið, fengum við fjárstuðning, eða "bakhjarl" til að hjálpa okkur við að kosta bolina. ÍSLANDSBANKI - Takk kærlega fyrir ykkar innlegg þetta árið. Erfiðasta verkefnið ár hvert er líklega að velja bara eitt málefni til að leggja hjálparhönd. 2022 styrkjum við Ljónshjarta.Ljónshjarta, eru samtök til stuðnings ungs fólks (20-50...

Read more →


4,5 milljónir til Stígamóta

4,5 milljónir til Stígamóta

Með þessu átaki okkar, sem hefur stækkað með hverju árinu.. viljum við hvetja fólk almennt til að vera næs við hvort annað. Verum næs, stöndum saman og höldum með hvort öðru, í stað þess að rífa náungann niður. Saman stöndum við sterkari en í keppni við hvort annað. Konur Eru Konum Bestar er lítil breyting á setningu en stór breyting á hugarfari.   Það voru yndislegar konur sem tóku á móti okkur hjá Stígamótum, www.stigamot.is Þær fóru í gegnum starfsemina sem á sér stað þar. Starfsemin er enn í þróun í takt við tíðarandann. Það er alltaf hægt að gera betur. Sem betur...

Read more →


Nú er það SVART !! 2021

Nú er það SVART !! 2021

Hver reiknaði með að covid myndi ennþá vera að setja allt úr skorðum 2021.Okkur fannst 2020 vera árið endalausa....en árið 2021 - er orðið að einhverju "svartholi" ?  Ari Eldjárn, notaði orðið "BlackOut" fyrir árið 2021.Einhvernvegin "árið sem gleymdist" ? Eða hvað ??Þegar allt átti að vera á uppleið, eftir covid.. Svo komu allar kynferðis-ofbeldis sögurnar uppá yfirborðið....sem hefur verið mjög þarft skref, en um leið mjög óþægilegt fyrir marga.Marga sem hafa upplifað slíkt atferli, þekkt til.. eða sumir jafnvel, sem hafa mögulega ekki áttað sig á því að um ofbeldi væri að ræða.. Heljarinnar ár !!  Að þessu sögðu,...

Read more →


Konur eru konum bestar 2020

Konur eru konum bestar 2020

Þá erum við búnar að afhenda Bjarkarhlíð upphæðina sem safnaðist þetta skiptið. Við eigum ekki til orð yfir þessari upphæð, og viðtökunum sem verkefnið fékk í ár !!  Þetta er allt saman ykkur að þakka ** TAKK FYRIR, að vera með í klappliðinu!!  Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.Markmið Bjarkarhlíðar er að veita stuðning og ráðgjöf ásamt fræðslu og umfjöllun um eðli og afleiðingar ofbeldis, auk þess að gefa skýr skilaboð um að ofbeldi verði ekki liðið. Þær Ragna og Hrafnhildur tóku vel á móti okkur.. þegar við mættu morguninn 01.des til að afhenda peningana sem við náðum að safna að...

Read more →